Innan Lingua/Norðan Jökuls ehf. sér Lingua-armurinn um tungumálaþjónustu, þ.e. þýðingu, túlkun og yfirlestur eða samningu texta. Hinn armurinn, Norðan Jökuls, býður viðskiptavinum leiðsögn og ráðgjöf um ferðir.
Framkvæmdastjórinn og stofnandi fyrirtækisins, Philip Vogler, hefur numið ensku, þýsku og íslenska leiðsögn auk kennslu-, bókmennta- og ferðafræði. Einnig hefur hann mikla reynslu sem kennari, þýðandi, bílstjóri og leiðsögumaður. Sjá náms- og starfsferil hans hér.
Þagnarskylda og trúnaður eru í hávegum höfð um öll mál sem leynt eiga að fara.
Að hluta í samvinnu við Norðursíma á Raufarhöfn, er símtölum svarað persónulega á virkum dögum kl. 9-12 og 13:30-16:30 eða hringt fljótlega til baka ef símnúmerið kemur fram og er innanlands. Tölvupósti er svarað aldrei sjaldnar en snemma þarnæsta virkan dag, en þó almennt mun tíðar. Oftast er fyrirtækið tilbúið í einhverja helgar- eða kvöldvinnu og stutt verk eru yfirleitt afgreidd innan þriggja virkra daga.
Lingua/Norðan Jökuls ræktar byggðasjónarmið. Horft er hvar sem er eftir kunnáttu og þjónustulundi en ekki síst úti á landi. Fyrirtækið fylgist með íslenskri menningu og styrkir hana eftir föngum, sérstaklega úti á landinu.
Í fimm sumur þ.e. frá 1993 til 1997, stofnaði og rak Philip Útileikhúsið "Hér fyrir austan". Auk leiksýninga og þjóðdansa voru oft tónleikar, handverkskennsla o.fl. Byrjað var á Eiðum en frá og með 1994 var sýnt í nýja útileikhúsinu í Selskógi við Egilsstaði. Þar sem árlegt tap var verulegt varð Philip að hætta en er fús til að ræða hugmyndir og styðja aðra við slíka starfsemi.
Internetið hefur skipt sköpum við að koma fyrirtækinu á koppinn. Netið er nýtt til að fá sem fullkomnastar upplýsingar fyrir leiðsögn og um heppileg orð og málfar. Einnig er það notað til kynningar og til að tengjast áreiðanlegu samstarfsfólki, hvar sem er í heiminum, þannig að sem oftast verði hægt að mæta kröfum viðskiptavinarins um fagþekkingu. Tæki og forrit fyrirtækisins eiga að uppfylla flestar nútímavæntingar.
Vinna fer oftast fram rafrænt, það er án pappírs. Rusl er lágmarkað frá vinnustað og það sem myndast er flokkað eftir því sem færi gefst innan sveitarfélagsins. Sem betur fer er Fljótsdalshérað framúrskarandi að þessu leyti. Fjölskylda Philips jarðgerir allt sitt lífræna rusl og notar moltuna í eigin garði.
Aðalatriði teljum við að gæta kjörorðanna:
Gæði og þjónusta í fyrirrúmi!
|