Íslenska English Deutsch Polski




Forsíðan - heim
Lingua - tungumálavinna
Norðan Jökuls - leiðsögn
Starfsemin almennt
Ýmislegt
Fyrirspurnir

Þú ert hér > islingua.is > Ýmislegt frá Lingua/Norðan Jökuls

Ýmislegt frá Lingua/Norðan Jökuls



Klikkið hér til að skoða dæmi um áhugamannavísur eftir Philip Vogler.


Klikkið hér til að finna upplýsingar um skemmtileg tækifæri fyrir Íslendinga til að hlaupa í Færeyjum.


Útileikhúsið "Hér fyrir austan"


Philip stofnaði Útileikhúsið "Hér fyrir austan" og rak það frá 1993 til 1997. Föst leikdagskrá var á hverju miðvikudagskvöldi, eitt sumar á Eiðum og síðan fjögur sumur í Selskógi við Egilsstaði. Leikverkin tengdust ávallt Austurlandi og voru fyrst og fremst eftir austfirska höfunda. Einnig bauð Útileikhúsið tónlist, þjóðdansa, handunnar vörur og þjóðlega hressingu, sýnikennslu um torfvinnslu og gerð sauðskinnsskóa, rímna, ketilkaffis og margt fleira. Viðburðadagar voru frá 8 til 27 á sumri. 

Allt var þetta gaman og menningarlegt en kostaði Philip óhemjutíma. Það sem verra var – reksturinn stóð aldrei undir sér þrátt fyrir þá styrki sem fengust. Því varð hann að hætta eftir þessi fimm ár. Ef þú hefur einhverjar hugmyndir um slíka starfsemi og vilt spjalla um þær eða jafnvel kanna möguleika á að starfa saman að þeim, hafðu endilega samband! Það kann að vera að rekstrarskilyrði eða styrkmöguleikar hafi breyst auk þess að það gæti munað um samstarf og ferskar hugmyndir.

 

Lógó Útileikhússins



Frá Philip um hlaðvarpsþætti á spænsku


Ég hlusta mikið á áhugaverða hlaðvarpsþætti. Í raun eru þeir allir sem ég nota ókeypis, þótt sumir séu það góðir að ég væri meira en tilbúinn til að borga eitthvað fyrir þá. Bæði hef ég áhuga á vísindum og tækni og á þjóðfélagsumræðu, jafnvel greiningu á tungumálunum sjálfum.

Tungumál eru einmitt aðalsviðið mitt en einnig vil ég rækta opinn hug. Því hef ég hlustað síðustu árin á þætti frá mörgum löndum, eins og stendur frá Austurríki, Danmörk, Svíþjóð, Noregi, Bandaríkjunum, Kanada, Spán, Frakklandi, írska lýðveldinu, nokkrum fylkjum í Þýskalandi, frá BBC í Englandi og Skotlandi og að sjálfsögðu frá Íslandi. MP3-spilarar gera auðvelt að hlusta á þessa þætti hvar og hvenær sem er. 

Síðan fyrir tveim eða þrem árum hefur mig langað til að rifja upp allavega skilning minn á spænsku, sem ég kunni sæmilega frá BA-stiginu í háskóla. Ég var hissa hve erfitt var að finna góða talmálsþætti á spænsku sem fáanlegir væru í gegnum hlaðvarp. Í öllum evrópskum löndum sem ég nefndi að ofan er ekkert mál að finna tugi ef ekki fleiri hundruð athyglisverða talþætti í hlaðvarpi en valið er öllu minna á spænsku en þá sérstaklega frá rómanskri Ameríku. Því vil ég deila með hverjum sem er eftirfarandi hlekkjum, sem ég var satt að segja mjög lengi að finna. 

Taka skal fram að það er ekki erfitt að finna tónlist í gegnum hlaðvarp, ekki heldur tónlist við spænska texta. Sjálfur skil ég varla hve margir á vefnum og í tölvugeiranum setja hlaðvarp og hlustunarbúnað og -forrit fram miðað eingöngu við tónlist. Talþættir sem þessir að neðan sanna að annað afar gefandi efni er til, líka á spænsku. Þó er framboðið á góðum talþáttum kannski langríkast í norðanverðri Evrópu, allavega af þeim svæðum sem ég þekki til. Vel að merkja kann ég ekki nema indóevrópsk tungumál og langt frá því öll þeirra!

Hér eru að ég held nægar upplýsingar til þess að hver nettengdur tölvunotandi geti gerst áskrifandi að hverjum talmálsþætti sem ég fann og mér hefur reynst áhugaverður. Nóg er til af ókeypis forritum til að láta sækja hlaðvarpsefni. Oft eru útvarpsstöðvar með ábendingar um slík forrit. Ég vil ekki blanda mér í tækniatriðin. 

Á hinn boginn má gjarnan skrifa mér og benda á fleiri góða talþætti úr hlaðvarpi á spænsku. Þættirnir fyrir neðan eru nokkuð ólíkir en að mér finnst ágætir. Sennilega myndi ég þó segja að HISPANORAMA standi upp úr, hafi maður ekki tíma til að hlusta á nema einn fjölbreyttan og fræðandi þátt á blandaðri spænsku. 

Samt finnst mér hægt að hlusta furðulega mikið yfir vikuna, ef maður hefur spilara með í innkaupaferðum, við að vaska upp ef ekkert sérstakt er í útvarpi, við að slá lóðina, ryksuga eða mála, í leikfimi og svo framvegis. Ég tel að listinn að neðan geti nýst öllum sem vilja hlusta á fjölbreytt spænskt tungutak en fylgjast jafnframt með þróun ýmissa mála og fræðast almennt. Verði ykkur að góðu! 

Canadá en las Américas http://www.rcinet.ca/rci/es/balado.shtmlViaje a Canadá en las Américas en compañía de Paloma Martínez Méndez y todo el equipo latinoamericano de RCI. Descubra los sueños y las realidades de los canadienses y de los nuevos inmigrantes latinoamericanos. Se buscan viajeros curiosos, quienes los sean... ¡bienvenidos a bordo! Feed URL: http://rss.radio-canada.ca/rci/caameric.xml

El castor mensajero http://www.rcinet.ca/rci/es/balado.shtmlEl Castor Mensajero es un puente entre Canadá y América Latina. Durante la hora de duración, los oyentes del hemisferio, a través de cartas, entrevistas, mensajes telefónicos, correos electrónicos, concurso, música y otras sorpresas, aprenden a conocerse y a ligarse en amistad. Feed URL: http://rss.radio-canada.ca/rci/elcastor.xml

HISPANORAMA (RNE) http://www.rtve.es/programas/intercambiosPrograma de 70 minutos de duración con reportajes sobre la actualidad socio-política y cultural de ámbito hispanohablante, con especial atención a acontecimientos relacionados con América Latina. Feed URL: http://www.rtve.es/download/podcast?IDPODCAST=181

Hora América en rtve.es http://www.rtve.esCanal de audios de Hora América Feed URL: http://www.rtve.es/podcast/SHORAA.xml

Mundo Solidario en rtve.es http://www.rtve.esCanal de audios de Mundo Solidario Feed URL: http://www.rtve.es/podcast/SMUNSO.xml

  Desember 2011    


Til baka

Lingua / Norðan Jökuls ehf. | kt. 660601-2360 | VSK-nr. 71536 | © 2011 | Öll réttindi áskilin
Dalskógum 12, 700 Egilsstaðir | Sími 471-2190 | lingua1@islingua.is